Saturday, December 01, 2007

Skólapartýgreinarsöngur

Skóli…. er e-h annað að gera þegar maður er í háskóla. Endalaus lærdómur. Næ varla að sjá Lumi, við þurfum að taka frá helgarnar til að hafa tíma fyrir okkur. Svo hitti ég vinkonurnar í hádegismat í skólanum. Hlakka til að vera búin í maí

Fór út í tilefni afmæli Helmuts, kærasta Önnu vinkonu minnar. Það var haldið á Manolos, gaman að hitta vini mina og aðra kunningja. Komst að því að ein skólasystir mín verður í Dubai á sama tima og ég og við ætlum að reyna að hittast. Eftir afmælisboðið hitti ég Ligiu, Andreu, Patriciu og Agnieszku á barnum 1516 í smá spjall.



Var að þjóna í opnunarpartýi lögfræðistofu fyrir tvær austurískar konur (kunningjar Alexöndru). Það var ekki auðvelt, starfið var minnsta mál en framkoma kvennana var hörmuleg. Í fyrsta lagi móðguðu þær okkur fyrir að kunna ekki að opna kampavín... sem ég gerði síðan með pompi og prakt, bæði rauðvín og kampavín. Síðan sögðu þær okkur að fara úr skónum, svo þar vorum við, á nælonsokkum að framreiða drykki og mat. Við héldum að við fengjum ekkert fyrir þetta svo vorum sjokkeraðar á hvernig var komið fram við okkur en fengum að lokum 50 evrur fyrir kvöldið. Eitthvað fyrir niðurlæginguna...super!

Ég hitti Julian og vann með honum að nýju lagi “I feel it at night” sem ég samdi og song og hann spilaði á piano. Það er á bæði facebook og myspace síðunni minni. Endilega látið mig vita hvað ykkur finnst um það….

www.myspace.com/annaclaessen
http://ilike.com/artist/Anna+Claessen

Vienna Review inniheldur tvær greinar eftir mig, eina um jólin mín á íslandi og svo aðra um London ferðina mina.

Var að fá vinnu sem byrjar í janúar… sem danskennari í nyjum dansskóla í Schottentor. Verð líklega að kenna jazzballet. Hlakka mikið til að dansa aftur.

3 comments:

Dis said...

til hamingju með vinnuna og allt hitt. Hlakka til að hitta þig á Maldive eyjum og eyða jólunum með þér í Dubai og gamlárskvöldi á Íslandi.

Anonymous said...
This comment has been removed by a blog administrator.
Anonymous said...

kona loksins ertu búin að sækja um vinnuna hihi þetta verður ýkt stuð
hvunar kemurðu á klakann