Wednesday, September 26, 2007

Veik í Vín

Er búin að vera veik heima.... ekki skemmtilegt. Það er þó skemmtilegt að hafa einhvern til að passa upp á sig.

Lumi er búin að sjá um það starf, gefa mér súpu og heita rétti, koma með mér í göngutúr (frískt loft) og leggja sig með mér. Voða huggulegt. Vinir mínir lögðu einnig sitt af mörkum, patricia og agniezska komu báðar í heimsókn með lyf og veittu mér félagsskap. Ligia gaf mér einnig lyf og þær eru allar búnar að hringja í mig reglulega til að sjá hvernig mér líði. Þvílíkt ljúfar.

Vienna Review kom út í sumar (var ég með eina grein, um Waldheim) og einnig núna í september (3 greinar: Live Earth, Ísland og svo um Lúkas dæmið heima).

Fyrsta skóladjammið, var haldið á Birdland. Hitti allar vinkonur mínar og skemmti mér konunglega með þeim. Myndin er frá þeim atburði.



Óli Helgi kíkir í heimsókn til mín frá 4-8.október og svo ætla lumi og ég að heimsækja fjölskyldu lumi í Kosovo frá 11.-14.október....hlakka mikið til!!!!!

2 comments:

Dis said...

Lattu ther batna elskan min. Goda skemmtun i Kosovo.
Love
Asdis

Anonymous said...

Láttu þér batna sæta :* Góða skemmtun í Kosovo, kv.þýskalandsfarinn