Monday, April 09, 2007

10 ÁR

Sunnudaginn 26. janúar, 1997 - Innlendar fréttir

Skátaskáli eyðilagðist í eldsvoða

"SKÁTASKÁLINN Vífilsbúð í Heiðmörk, sem er í eigu skátafélagsins Vífils í Garðabæ, gjöreyðilagðist í eldsvoða í fyrrakvöld eftir að eldur kviknaði út frá gaskút. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði varð skálinn, sem er skammt austan við golfvöll Oddfellowa í Urriðavatnsdölum, strax alelda eftir að eldurinn varð laus, en hópur skáta sem ætlaði að dvelja í skálanum um helgina ásamt foringja sínum slapp án nokkurra meiðsla. Tilkynning um eldsvoðann barst lögreglunni í Hafnarfiðri kl. 22.25 í fyrrakvöld og þegar slökkviliðið úr Hafnarfirði kom á vettvang varð ekki við neitt ráðið, en slökkvistarf stóð yfir fram yfir miðnætti."

Frétt fengin lánuð af mbl.is

Skrýtið, ég hélt ég hefði verið 9 ára þegar þetta gerðist!!! En þetta gerðist 97, skv. morgunblaðinu.

Ég var ein af stelpunum, enn skíthrædd við eld og sérstaklega gaskúta. Hætti í skátunum eftir þetta atvik því ég vildi ekki vera lengur í skátunum þar sem ég var hrædd, alltaf heyrandi draugasögur og svona.

ég var að hlusta á músík þegar þetta gerðist og man að við vorum nýkomin úr snjógöllunum og þurftum svo að hlaupa í fötunum út í háan snjóinn. Svo báðu þau okkur að halda fyrir eyrun og PÚFF! skálinn stóð í björtum loga.

Ekki rétt sem sagt er í fréttinni að enginn slasaðist. Foringinn okkar var með gifs því hann brenndi sig þegar hann ætlaði að nota slökkvitæki inn í búsaðinum, ekki sniðugt þar sem það hafði verið inni og var sjóðheitt.

Ég man eftir hvað hinn foringinn sagði í bílnum, við vorum að væla yfir dótinu okkar og hún öskraði "Þið hefðuð getað dáið", þá kom það, óttinn.

Við fengum áfallahjálp, við áttum að syngja "Brennum eld" og hlæja að því, NO KIDDING. ég var svo reið!

Upplifun sem maður aldrei gleymir.

Saturday, April 07, 2007

Kveðjustund

Í tilefni þess að Ósk og Alexandra voru að fara heim til Íslands notaði ég tækifærið og hitti þær eins mikið og ég gat síðustu dagana.

Á föstudagskvöldi hittumst við í strassenbahn á leiðinni til T.G.I Friday´s. Við biðum eftir Malin, sænskri stelpu sem kom með austurríska kærasta sinn. Við fengum okkur svo öll kokkteila og e-h gott að borða. Við reyndum að spjalla við kærasta Malin en lítið gekk svo við enduðum með að hafa stelpuspjall , á meðan gaurnum leiddist nett mikið. Seinna um kvöldið fóru þau og ég, Ósk og Alexandra löbbuðum yfir á Salmbrau og biðum eftir að vinur þeirra Colin væri búin á vakt. Svo enduðum við á Charlie Ps þar sem við fengum okkur bjór og forum svo heim.

Á mánudaginn var svo kveðjustund og var það framleitt með pönnukökum. Við horfðum svo á “The Truth about Cats and dogs” og reyndum að horfa á “French Kiss” eða þar til talvan hennar Ósk fór að hökta og Alexandra sofnaði. Svo töluðu ég og Ósk í þó nokkuð langan tíma þar til ég ákvað að það væri tími fyrir mig að fara. Ég kvaddi stelpurnar og fór svo heim. Ég á eftir að sakna þeirra rosalega mikið. Þetta var æðisleg stelpuhelgi.

Thursday, April 05, 2007

3.sæti í live karaoke

Á laugardaginn síðasta keppti ég í live karaoke á barnum Ratpack. Ég tók login “Que Sera, Sera” og “The Winner Takes It All” og gekk það prýðilega. Eftir hvert lag fengum við keppendurnir athugasemd frá dómurunum og ég fékk að ég hefði rosalega fallega rödd og vissi hvernig átti að nota hana og svo að karakterinn minn skini í gegn, að ég væri ekta skemmtikraftur og frábær söngkona. Alltaf gaman að heyra góða hluti.

Við fengum svo stig frá dómurum 1-10 og svo frá áhorfendum í hvaða sæti við vorum 1-7. Ég lenti í þriðja sæti. Í fyrsta sæti var jazzsöngkona og í öðru sæti var 16 ára stelpa sem náði að syngja Whitney Houston lag með svaka krafti og mjög vel. Í verðlaun fékk ég 30 evrur, 50 evrur stúdíótíma og 30 evrur á barnum. Voða gaman að taka þátt og fá feedback :)

Friday, March 30, 2007

Ertu 90´s barn?

Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstum því öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"

Þú manst þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þú manst þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þú manst þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar jójó voru kúl

Þú horfðir á Batman, Aladdín, Turtles og Kærleiksbirnina

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill

Þú áttir tölvugæludýr

...eða Furbie

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með netið

Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

Þú manst tímana áður en að Myspace varð vinsælt

Þú manst tímana áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var

Þú manst tímana áður en ipod kom til sögunnar

Og áður en PlayStation 2 og Xbox voru til

Þú manst þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Tuesday, March 27, 2007

Kuldabítur í byrjun skólans

Skólinn byrjaður á fullu. Tek fimm kúrsa þessar 8 vikur. Media Research, Management, Theory and Practise, Newspaper Production, Media Ethics og Broadcast Journalism: Webcast Production. Líst rosa vel á nýju kúrsana en hlakka til að vera búin með gömlu.

Eftir 20 stiga hita í Spring break, fór veðrið í frostmark þegar skólinn byrjaði aftur. Líkaminn minn tók þessari breytingu ekki vel og varð ég veik. NO FUN

Á fimmtudaginn treysti ég mér svo loksins til að fara út og fór til íslensku Alexöndru og hitti þar Ósk og Colin. Þær elduðu Wiener snitzel, franskar og bjór og var það rosalega gott. Eftir það gerðu þau könnunina mina fyrir media research og svo skellti ég mér í Webster party.

Partýið var haldið á Passage og hitti ég amerísku stelpurnar sem voru á student orientation, spjallaði við þær en hékk svo með ligiu, manuelu, alexöndru og önnu. Ég tók myndir en folkið var svo hundleiðinlegt, vildi ekki láta taka af sér myndir svo ég lét Agniezsku (pólska vinkonu mina) fá myndavélina og hún tók smá myndir. Ég lét Patriciu vita og hún var yndi, sagði þetta vera ekkert mál. Ég hékk svo með stelpunum en fékk svo myndavélina aftur og ætlaði að taka myndir af einum gaur. Nema hvað, ég hafði víst tekið mynd af honum án þess að spurja hann og hann varð full og ég varð brjáluð. Sagði honum að það hefði þegar skammað mig á fundi og ég myndi ekki taka myndir af honum framar og labbaði í burtu.

Var komin með nóg. Hafði ekki sofið kvöldið áður, verið í skolanum allan daginn, fengið slæma einkunn og að fá svo svona bögg á sig. Ég var við það að bresta í grát en Alexandra yndi kætti mig og við dönsuðum leiðindin af okkur.



Slappaði af með Lumi og lærði og skrifaði greinar um helgina. Á sunnudagskvöldið fór ég svo til íslensku Alexöndru og Ósk þar sem þær voru svo miklar elskur að baka pönnukökur og svo horfðum við á Grey´s Anatomy og My best friend´s wedding og svo auðvitað höfðum langt stelpuspjall. Þessar elskur eru að fara eftir minna en viku og vá hvað ég á eftir að sakna þeirra. Ef ég hefði matt velja íslenska herbergisfélaga þá væri það pottþétt þær. Yndisleg og róleg helgi annars.