Friday, October 26, 2007

Cosmopolitan og Gwen Stefani

Í tilefni því að fyrstu önninni var lokið, fögnuðum við stelpurnar áður en þeir héldu leið sína erlendis. Ég, Agnieszka, Ligia, Alina, Andreea og Manuela fórum á uppáhaldsstaðinn okkar, karaoke stað sem er með bestu cosmopolitan sem ég hef smakkað. Það var svaka stuð, ég fékk meira að segja Alinu og Agnieszku til að syngja Like A Virgin, ótrúlega skemmtilegt kvöld (eins og alltaf).



Fór á Gwen Stefani tónleika og varð alls ekki fyrir vonbrigðum…hún var stórkostleg. Tók þó mest af lögunum af nýju plötunni og nokkur af Love, Angel, Baby. Töff búningar, dansarar og show. Svo þess á milli spjallaði hún við áhorfendurna og minntist á hve stórkostlegar byggingarnar voru. Hún sagði að hún kæmi frá Orange County og það sem kæmist næst því væri Disneyland og bætti svo við “Man, they ripped you off.” Hreint út sagt frábær skemmtikraftur sem syngur af lífi og sál….eins og hún segir sjálf: “I´m just an orange county girl, living in an extra-ordinary world.”



Annars er ég búin að vera að hanga með Lumi, vinunum og skrifa greinar.

2 comments:

EggertC said...

Aldeilis gaman hjá þér Anna mín.

Kveðja og knús,
Pabbi

Unknown said...

Hey hey gella! Þin er sárlega saknað auk austurríkisins. En nú er stutt að bíða. Kem til baka 19. nóvember og ÆTLA mér í þetta skiptið að stoppa lengur við í Vín.

Bis bald hubsche

Hulda ex. vínargella