Saturday, February 09, 2008

Vinnuportfolioreviewdanskennsluhittingur

Vinnuvika: var að hjálpa fjölmiðlafyrirtækinu Wildfilms/Docuzone, sem framleiðir heimildarmyndir þessa vikuna. Þetta er lítið fyrirtæki, karlinn og konan hans eiga þetta og vinna þar tvö. Starfið mitt var að panta skrifstofuvörur, senda e-mail v/breytt heimilisfangs og prenta út handrit og binda þau (1200 bls). 30 klst vinna + skóli=STRESS! Gerði mér einnig grein fyrir að ég þarf að bæta þýskuna mína áður en ég fer á vinnumarkaðinn.

Portfolioreview:
Gaf kennurunum eintak af tveim videoum, "Opera: the next generation" og "Fortune cookies," í cd coveri með mynd af mér og lýsingu á videounum og fjórar greinar, "Aftermaths of War" (Kosovo greinin), "Making the show," "Austria Needed Waldheim," og "Rooftops." Svo hélt ég powerpoint kynningu í 20 mín og talaði um árin mín í webster, hvað ég hefði lært, talaði aðeins um verkefnin mín og leyfði þeim að heyra lagið "blonde in disguise" sem ég skrifaði og söng. Sýndi einnig trailer af Operu videoinu.

Svo fór ég út og kennararnir töluðu saman. Ég kom aftur inn og þá gáfu þeir mér þeirra skoðun. Þeir grínuðust með að ég væri "case" , þá grínaðist ég til baka "am I a good case or a bad" og hvað svara þeir þá? "a little bit of heaven and hell." Ég fékk sjokk. Þeir gátu ekki hætt að tala um að ég væri ekki góð í JOURNALISM...halló, ég er búin að læra fjölmiðlafræði í 2 1/2 ár og þeir ákveða að segja mér þetta núna. Þeir segðu að ég væri fullkomin fyrir framan myndavélina hins vegar. Gátu þeir ekki sagt mér þetta strax og þá hefði ég farið í leiklistarskóla eða e-h meira viðeigandi. Ég gat trúað Dardis til að segja þetta en að Anthony og Michael sögðu það líka... ég trúði ekki mínum eigin eyrum. Þvílík framtíðarvon sem þau gáfu mér. Eins og ég væri ekki nógu stressuð að útskrifast og finna starf og svona ýta þeir mér úr skólanum. Ég allavega náði.

Danskennsla: Fyrsti danstíminn gekk vel, fékk fjóra í jazzballet og tíu í latin jazz í fyrstu viku skólans, þessa vikuna, sama dag og portfolio review kom enginn, greinilega ekki minn dagur.

Hittingur:
til að gera slæman dag að góðum, fagna hörmulegum degi, þá hitti ég Ligiu, Alexöndru, Dóru og Patriciu. Hittumst á T.G.I Fridays og þar fékk ég mér Strawberry Margarita og það bætti daginn heilmikið :P Alexandra, Dóra og Patricia þurftu að fara svo ég og Ligia fórum á Charlie Ps þar sem við hittum Andreeu og aðra Rúmena. Dönsuðum þar aðeins við góða tónlist og fórum svo heim.Fyndið... ég, Agnieszka, Ligia og Patricia, köllum okkur Cashmere mafia. Mæli eindregið með þeim þætti, algjör snilld.

Þetta lýsir vikunni minni best


Nýjar vefsíður:

Myndasíðan mín: www.flickr.com/a_claessen
Nemendafélagið: www.webstersc.org/main/
Vienna Review: www.viennareview.net
Casomai: www.casomai.at

3 comments:

Anonymous said...

hvað er í gangi hjá þér? uss
En þú getur alveg orðið fréttakona þó svo að þú skrifir ekki fréttirnar. Það er nokkuð flott að vera sá sem að segir fréttirnar líka! Er það ekki?????
Ég öfunda þig samt ekkert smá af dansinum. Ef að ég væri í Vín þá kæmi ég í tíma til þín ;)

Anonymous said...

Váá já ég er sammála rósu. Þau voru ekki að segja að þú ættir ekki heima í fjölmiðlunum alls ekki Anna. Og já ég myndi mæta í tíma til þín :D

Anonymous said...

og eitt annað :D þýskan myndi batna geðveikt fljótt um leið og þú færir út á vinnumarkaðinn því þá værir þú að nota hana á hverjum degi ;)