Sunday, March 30, 2008

Allt að gerast

Hrein íbúð, blóm á borðinu frá ástinni minni... það var yndislegt að vera komin aftur til Vínar. En svo kom næsti dagur og daglega lífið byrjaði aftur.

Ég er í fimm kúrsum, Webcast Production, Newspaper Production, Interpersonal Communication, Photo og Drawing.

Ég er mjög ánægð með kúrsana, sérstaklega Interpersonal Communication. Ég er með Lenku vinkonu minni í kúrsnum, áhugavert efni og við gerum ýmisleg verkefni í staðinn fyrir að sitja í tímanum og skrifa niður glósur. Í drawing erum við að teikna alvöru líkama, ó já... það er manneskja nakin fyrir framan okkur. Nett óþægilegt í fyrstu en svo sjáum við manneskjuna líkt og hlut og við teiknum án þess að roðna. Er svo að kenna dans í Casomai, latin og jazzballet. Vonast þó til að sjá fleiri mæta í tímana mína.

Þrjár greinar eftir mig koma í næsta Vienna Review, um Casomai, dansstudioið þar sem ég vinn, þjónustuna í Austurríki og um Panel umræðu í skólanum um EU og Kosovo.

Fékk símtal frá Press TV, www.presstv.com, um að vera "foreign correspondent" í Vín. Ég þurfti að gera test, svo ég fór á Heldenplatz og ræddi í míkrafón um mótmæli í Austurríki vegna aðild þeirra í EU. Því þetta var írönsk stöð þurfti ég að vera með sjal. Gekk ágætlega. Svo seinna um daginn gerði ég "voiceover" og við sendum þetta svo til höfuðstöðvanna í Íran. Ég fæ að vita eftir helgina hvort ég fæ starfið.



Ég fékk tilnefningu til Webbies (óskarsverðlaun Webster) fyrir greinina mína um Madonnu "Provoking Preace." Verðlaunin verða veitt í næstu viku. Besta vinkona mín, Alexandra, fer þangað fyrir hönd Webster Vienna, en hún var líka tilnefnd.

Spennandi hlutir framundan.....

3 comments:

Anonymous said...

svakalega tekuru þig vel út fyrir framan cam-ið :)

láttu mann endilega vita ef þú færð starfið þetta hljómar mjög spennandi

Dis said...

Thu ert ekkert sma flott med thessa slædu a hausnum.
Og til hamingju med tilnefninguna...var thad ekki greinin thar sem thu vitnadir i mig..he he.

Anonymous said...

Vá það er aldeilis margt um að vera hjá þér!
Ég er að rotna í lögfræðilestri og nett kvíðin fyrir prófum.

Kannski ég komi til Vínar í sumar - Ég vona innilega að ég geti það!
Hafðu það gott ;)
Þórdís Kolbrún lærinördi.